BLOGG GUNNU

wazzup

13.06.2008 09:47:42 / emil

LOKSINS.....

jæja er ekki passlegt að fara að blogga núna komið hálft ár síðan síðast.:$.... bumbubúin stækkar og stækkar og fengum við að vita að það sé annar strákur á leiðinni.....eintóm hamingja.:lol:....væntanlegur fæðingardagur er 13.júlí nákvæmlega mánuður efttir og er ég orðin ansi þreytt á að vera svona ólétt í þessum hita hérna. Mamma kemur til okkar 7. júlí því hún ætlar að vera viðstödd og svo kemur pabbi 15.júlí, Tengdamamma kemur svo í lok júlí. Okkur hlakkar mikið til að vera í öll í fríi í sumar og dúllast með prinsana okkar, höfum held ég aldrei verið svona lengi í fríi saman.
Reyndar fer Gunni aðeins heim til Ísland til að henda upp grunni á nýju lóðina okkar Sjónarhól 8, í Sandgerði, já ég veit hélt ég fengi Gunna ALDREI til að flytja í Sandgerði en hann er núna bara orðin Sandgerðingur í húð og hár.....talar ekki um annað en hvað Sandgerði sé frábær bær!!!8)
Við Gunni erum búin að vera á fullu í skólanum síðustu vikur og búið að vera mjög erfitt vegna þess að leikskólarinir hafa verið í verkfalli og Emil hefur ekki núna farið á leikskólann í margar vikur, en Sigrún systir Gunna er búin að vera rosalega dugleg að vera með hann og hjálpa okkur, alveg æðisleg TAKK TAKK SIGRÚN. Hann er reyndar búin að vera síðustu viku hjá konu í mosanum sem er að passa fyrir fólk meðan verkfallið er og hefur það gengið vel.
Við erum reyndar svo bara búin að vera í fríi síðan á Mánudaginn en ég fór í prófið mitt þá og fékk 12, sem er hæðsta einkunn, ekkert smá ánægð með það, gott að geta loksins hvílt mig aðeins barnsins vegna, bjóst næstum við því að fara bara upp á fæðingardeild beint eftir prófið, en hann verður að fá að bakast aðeins meira. Er reyndar búin að vera með mikla samdráttaverki þannig að það kemur mér nu ekkert á óvart ef hann lætur sjá sig eitthvað fyrr.....
Gunni fór í sitt próf á Miðvikudaginn og fékk 7, þannig að hann er líka komin í frí fram á Mánudag en þá byrjar valfagið okkar sem stendur yfir í 3 vikur, þá er vika í settan dag.
Ljósmæður eru líka enn í verkfalli, þannig að manni verður hennt heim af fæðingardeildinni 3 tima eftir fæðingu:( ef allt hefur gengið vel og með mæðraskoðun þá hefur maður eginlega ekkert fengið, t.d núna fæ ég að koma í næstu viku og þá er það númerakerfi og þarf maður að bíða stundum hátt í 2 tíma eftir skoðun sem er bara svona flótleg, tekkað þvag, blóþrýsting og hjarslátt hjá barninu, ekkert spall eða svoleiðis. Ef ég væri heima á Íslandi færi ég vikulega þegar maður er gengin svona langt, en ég hef fengið ca. 1 skoðun í mánuði.
Gunni fór til læknis um dagin af því hann var með verk fyrir brjóstinu og læknirinn sagði að hann væri líklega með eh galla í hjartanu og vildi senda hann í rannsókn upp á spítala, við fengum svo miða í vikunni sem stóð að vegna verkfalls hjúkrunafræðinga fengi hann ekki skoðun fyrr en verkfallið leysist........þannig að það er veið að brjóta á öllum strákunum mínu, Leikskólinn, ljósmæður og hjúkrunafræðingar.:cry:
Jæja þetta er orðin góð samloka í bili, nennir örugglega engin að lesa þetta en voandi mun ég nenna að blogga eh fyrr en eftir 6 mánuði....
Hilsen
Gunna

» 7 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 14:00:56 / emil

Bara góðar fréttir........

Þá er ég búin með lokaprófið og fékk ég 10, ég er alveg bara búin að vera í skýjunum. En ég er líka búin að vera rosalega dugleg í vetur og var líka í mjög góðum hóp. Var búin að ákveða að fara yfir á ensku línuna næstu önn en eftir prófið fór ég og breytti og verð aftur á dönsku. Danskan mín er líka búin að fara svo fram síðastliðnu vikur fyrir próf að ég er stundum að hugsa á dönsku og íslenskan mín er orðin alveg hræðinleg, dönskuslettur hér og þar. Nú er ég bara búin að vera í fríi alla þessa viku og safna kröftum en á mánudaginn byrja ég í 3ja vikna valfagi og er ég að fara í fríhendisteikningu. Gunni er bara á fullu í skólanum og fer í sitt lokpróf 29.jan.

Það er líka í lagi að segja frá því núna að það fjölgar aðeins hjá okkur hérna á kollegíinu í sumar en ég er ÓLÉTT og er von á litla krílinu 13.júlí sem passar bara fullkomlega, því þá þarf ég bara að taka frí í eina önn og get svo verið með Gunna í bekk. Emil er voðalega stolltur yfir þessu og segir að mamma sín sé með litla barnið sitt í mallanum. Hann vill nú samt bara að þetta sé strákur og ef þetta er stelpa má hún sko ekki leika með dótið hans. Hann sat á klósettinu um daginn: ,,Þetta er strákur með hár ekki stelpa með kjól,, miklar vangaveltur í gangi. Ég sagði við hann að hann gæti talað við litla barnið inni í mallanum og þá myndi það þekkja röddina hans þegar það kæmi í heiminn og nú er hann alltaf eh að spjalla við bumbuna og syngja fyrir litla barnið.  

Ég er búin að vera frekar slöpp og þreytt þessa fyrstu 3 mánuði, gæti bara sofið allan sólahringinn ef ég mætti. Hef verið rosalega lystarlaus út af flökurleika en það fer vonandi allt að lagast. Fórum í hnakkþykktarmælinu um daginn og leit allt ljómandi vel út, litla krílið alveg fullkomið og hreyfði hendur og fætur á fullu, ohh þetta er svo æðisleg upplifun, vildi að ég ætti svona sónartæki heima. Er í dag komin 13 vikur og  4 daga og við förum næst í sónar á afmælisdaginn hennar Sigrúnar þann 25.febrúar og þá er hægt að sjá kynið ef við ákveðum að vilja það, en mig langar svolítið að upplifa það að vita ekki kynið því eg fékk að vita með Emil en við sjáum hvort forvitnin fari með mann.

Meira er nú ekki að frétta af okkur, ætla að fara að setja inn myndir og fréttir á síðuna hjá Emil í kvöld enda löngu komin tími til.Við erum komin með svona Smart síma þar sem kostar ekkert fyrir okkur að hryngja og fyrir ykkur bara eins og þið séuð að hryngja í heimasíma á íslandi. Númerið okkar er: 496-1035, endilega látið vita heimanúmerið ykkar svo við getum hryngt.

KveðjaGunna


» 12 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 19:37:32 / emil

Engar karlrembur takk........

Three men where sitting together bragging about how they had given their new wives duties.

The first man had married a woman from Colorado and had told her that she was going to do the dishes and house cleaning. It took a couple days, but on the third day he came home to a clean house and dishes washed and put away.

The second man had married a woman from Nebraska. He had given his wife orders that she was to do all the cleaning, dishes and the cooking. The first day he didn't see any results, but the next day he saw it was better. By the third day, he saw his house was clean, the dishes where done, and there was a huge dinner on the table.

 The third man had married a woman from Iceland. He told her that her duties where to keep the house cleaned, dishes washed, lawn mowed, laundry washed and hot meals on the table for every meal. He said the first day he didn't see anything, the second day he didn't see anything, but by the third day some of the swelling had gone down and he could see a little out of his left eye, enough to fix himself a bite to eat and load the dishwasher.

www.lilly.dk

 Myndi einhver láta bjóða sér svona skyldur fra eiginmanni, á mínu heimili ríkir allavega jafnretti.  Gunni eldar oftast og svo þrýfur hann líka oft heimilið og vaskar upp. Setur meir að segja i þvottavél og allt. Hann er svo yndislegur þessi elska ;)

Við Gunni vorum að kaupa okkur nýja síma í gær, því okkar gömlu voru hreinlega að hrynja í sundur. Fengum okkur Nokia 6288, ég hvítan og Gunni svartan. Svo ætlum við að fá okkur alveg eins neongula jogging galla og alveig eins hjól og þá verðum við bara flottust. 8)

Hilsen

Gunna


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 17:40:33 / emil

Nei,nei hvað er að gerast...................

Ótrúlegt en satt, 2 blogg í sama mánuði, en það kom yfir mig einhver bloggfílingur. Var að eignast lítinn frænda í nótt en Inga frænka og Hjalli eignuðust prinsinn sinn kl 5 og bíður maður núna spenntur yfir að sjá myndir og svo villjum við láta líða svona hæfilega langur tími þar til við kíkjum á þau. Innilega til hamingju með Gullmolann.:lol:

Ég er orðin svo fullorðin að ég er farin að drekka kaffi, enda komin tími til þar sem maður er nú hættur að stækka. Gunni keypti sér svona Senseo vél og jjjiii hvað expresso er gott, drakk 3 bolla af því í gær og gat síðan ekki sofnað fyrr en undir morgun, enda var nú svo mikill hávaði hérna á kollegiinu út af skólaballinu. Sötra á kaffibolla núna uuummm ;)

Fór í einkaþjálfaratíma í morgun, en hún var að gera nýtt prógramm én ég var hjá henni fyrir 5 vikum og er ég nú reyndar ekkert búin að vera allt of dugleg í ræktinni og mætti alveg passa mataræðið betur, maður er bara allt of góður við sjálfan sig, en núna er ég alveg ákveðin að setja mig í gírinn og gera þetta af alvöru, stefni á að komast í kjólinn um jólin eins og aðrar kollegí skvíur 8)

Skólinn gengur mjög vel núna, er í góðri grúbbu og vinnum öll vel og erum alveg á góðu skriði, nenni ekki að þurfa að vera uppi í skóla 24/7 þegar prófin nálgast enda eru þau strax eftir jól og væri gott að fá smá jólafrí þar sem fjölskildan mín er að koma.

Ohh ég sakna mömmu og pabba svo mikið og auðvita bræðra minni:cry:, stundum hugsa ég hvað það væri gott að búa á Íslandi í faðmi fjölskildunnar og hvort að Emil sé að missa af svo miklu að hafa ömmur sínar og afa ekki í kringum sig, en vonandi hlýtur hann engan skaða af þessu og verði honum bara frekar til góðs. Ömmurnar eru nú reyndar mjög duglegar að heimsækja og dekra ömmugullið sitt.:P

Það gengur svo vel í leikskólanum hjá Emil, þær eru svo ánægðar með hann og segja að hann sé alltaf að auka orðaforðann sinn meir og meir og svo er hann farin að syngja lög á dönsku hérna heim og ætlaði fóstran að ljósrita einhver lög fyrir mig svo ég gæti nú tekið undir með honum. Emil var á klósettinu hérna um daginn að kúka og var ég hjá honum og sagði við hann hvað það væri nú mikil kúkalykt, þá dró hann vel inn um nefið og sagði: ,,Det lykter dejligt'' Algjör töffari.8)

Vorum í barnaafmæli í dag hjá henni Ásrúnu Emmu skvísu sem er orðin 5 ára en hún er dóttir Möggu og Auðuns sem eru nýflutt hingað, það var nátturulega raðað í sig kökum þrátt fyrir að vera búin að reyna að heilaþvo mig fyrr um morgunin um að passa mataræðið, en þegar freistingarnar blasa svona fyrir manni er það svolítið erfitt, eftir helgina verður sko farið yfir skápana á þessum bæ og hent allri óhollustu takk fyrir.:$

Amma Nanna hans Gunna er enn mjög veik og fékk smá bakslag, erum búin að vera með kveikt á kerti fyrir hana og byðja fyrir henni, vonum svo innilega að hún nái sér upp úr þessu, við erum stöðugt með hugan hjá henni.

Kær kveðja

Gunna bloggari:haha:

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 14:14:40 / emil

Litla barnið mitt......

já haldiði ekki að litli prinsinn okkar sé orðin 3ja ára, alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða, maður verður farin að versla skólatösku áður en maður veit af. Hann er svo mikill prins að hann fær 3 veislur, mamma hélt eina áður en við fórum til Dk og svo héldum við eina á sjálfan afmælisdaginn og svo fær hann að fara með köku í leikskólann á morgun. Það komu ca 20 manns i afmælið á föstudaginn, aðallega vinir á kollegíinu og svo er Ella amma hans, Langamma Magga og langafi Gunni búin að vera hérna í vetrafríinu og náðu þau afmælinu. Ekkert smá sem barnið fékk af gjöfum og hann hæstánægður eftir daginn. Við gáfum honum sjónvarp með dvd inn i herbergi....amman spurði nú bara hvað ætti egilega að gefa honum í fermingargjöf og hvort hún yrði ekki bara að fara að byrja að safna. 8)

Við fórum með prinsinn niður á höfn í gær því það var ákveðið að gefa fiskabörnunum allar snuddurnar því að þau ættu engar og hann kastaði snuddunum sjálfur í sjóinn. Hann hefur svona aðeins verið að spyrja eftir þeim og eru það foreldrarnir sem verða að vera sterk núna.:S

Við erum búin að vera í vetrarfríi í skólanum síðastliðna viku, gátum því miður ekki gert eins mikið og við vildum því Emil var eginlega veikur mest allan tíman, en við fórum til þýskalands með gestunum og svo heldum við partý hérna hjá okkur á föstudagskvöldið eftir afmælið til að nýta ömmuna svo við gætum loksnins farið saman að djamma.;) 

Peter, einn danskur bekkjarfélagi hans Gunna og kona hans Janette komu í partýið og vorum við Gunni eginlega allan tíman að reyna að spjalla við þau svo þau yrðu ekki útundan og svo voru allir voða kammó við þau að reyna að spjalla og svona, um nóttina hituðum við svo upp heitu réttina sem urðu afgangs eftir afmælið og bárum fram alla kökuafgangana, 1 kg af harðfisk og Maggi gerði sitt fræga rækjusalat.....það var svo ótrúlega gaman að það fór bara enginn niður í bæ, langt síðan maður hefur skemmt sér svona vel. Danska parið skemmti sér allavega rosalega vel.:lol:

Gunni keypti handa mér FRIEND'S safnið sem mig hefur langað í í mörg ár og var það svona síðbúin afmælisgjöf. Við erum búin að vera að sjæna hérna heima og ætlum að hygge okkur fyrir framan imban og byrja MARAÞONIÐ.

Nú fer aldeilis að styttast í jólin og ætla mamma, pabbi, Grétar bróðir, Hildur og Daníel bæring að koma og vera hérna með okkur um jólin og verða í íbúðinni hjá Sissu og Magga. Oh þetta á eftir að vera æðislegt. Eina leiðinlega er að prófin hjá mér eru bara strax eftir áramót, gæti lent í að fara í lokapróf 2 jan kl 8:20....bara glatað.:frown:

Nú fer aldeilis að styttast í að lítill frændi líti dagsins ljós hérna á kollegíinu, en Inga frænka er alveg komin á steypirinn, Jóna mamma hennar kemur á morgun en væntanlegur fæðingardagur er á miðvikudaginn, þannig að nú er hún á fullu að prufa öll húsráð til að koma þessu af stað. Gangi ykkur vel Inga og Hjalli :P

Nanna amma hans Gunna er búin að vera mikið veik síðast liðnu daga og sendum við henni hlýja strauma og vonum að allt muni ganga vel. Erfitt að vera svona langt í burtu þegar eitthvað slæmt hendir ættingja og vini.

Hafið það sem allra best

Gunna skólastelpa ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 20:46:46 / emil

Sjúdderarírei.....

Já ætli það hafi ekki verið löngu komin tími til að henda inn nokkrum línum.

Þessi önn kláraðist víst og fekk ég 9 fyrir hana og bara nokkuð sátt.:) Við familían erum öll komin til Íslands en erum minnst saman. Hef seð Gunna minn heila 3 daga síðan ég kom til landsins og ekki eins og við gátum verið mikið saman síðustu vikurnar af önninni, en svona er þetta bara, smá tímabilsástand.:(

Gunni er er að leggja vegi einhverstaðar á norðurlandi og er alltaf á einhverju nýju og nýju krummaskuði þegar ég heyri í honum, Húsavík, Grenivík, Reyðarfirði o.s.v Emil er búin að vera núna þessa vikuna með mömmu og pabba í Sandgerði á meðan ég er að vinna og kemur á morgun. Ég er að vinna á Verkfræðistofu Suðurlands og bý hjá Tengdaforeldrum og passar tengdamamma Emma meðan ég er í vinnunni, en er bara búin að vera síðustu viku úti á landi. Það er nú gott að eiga góða að, þó að ég hefði nú alveg frekar kosið að vera bara sjálf með Emil á daginn en gott að geta þyngt aðeins budduna þennan stutta tíma. Er reyndar að læra rosamikið í vinnunni sem á eftir að nýtast mér, fæ að teikna burðavirki ogsolleis, auk þess sem ég er búin að vera að teikna stálgrindarhús sem er víst verkefni á næstu önn.

Ég er búin að fara á tvö ættarmót, eitt Gunna meigin og eitt mín megin og var það bara mjög gaman. Gunni fær helgarleyfi núna um helgina og ætlum við að fara upp í bústað og hafa það kósý um helgina og halda svo smá geym á laugardagskveldið því mín á svo afmæli á Sunnudeginum. Það verður óggesslega gaman.:haha:

Verslunarmannahelgin verður eh í rólegri kanntinum, enda er svo dýrt að hreyfa á sér rassgatið þessa helgi og þar sem við erum orðin svo dönsk og sparsöm ætlum við því að fara í sumarbústaðinn hjá mömmu og pabba í Búrfellinu og svo á laugardagskvöldinu í RVK til Palla í smá innipúkadjamm.

Vá manni blöskrar bara verðlagið hérna á Íslandinu, eins gott að meður sé að mennta sig til að geta búið hérna í framtíðinni, fór í bónus í gær að versla í eina máltíð og mar fór liggur við á hausinn, hefði bara verið ódýrara að ná sér í skyndibita.

En anyway er þetta ekki orðið ágætis blogg

fanst þetta svolítið sniðugt: It's a womens world

Peace for the women (38 photos)

 

Peace for the women (38 photos)

Peace for the women (38 photos)

Peace for the women (38 photos)

Peace for the women (38 photos)

Peace for the women (38 photos)

Peace for the women (38 photos)

Peace for the women (38 photos)

Peace for the women (38 photos)

Peace for the women (38 photos)

Peace for the women (38 photos)

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 08:53:14 / emil

Fljótt skipast veður í lofti!

Það er nú ekkert smá búið að gerast síðan síðast. Við Emil fórum til Íslands 12.maí til að vera viðastödd brúðkaupið hjá Grétari bróðir og Hildi og vá hvað þetta var allt saman fallegt.:D Kjóllinn hennar Hildar var líka BARA flottur.Hér kemur mynd af þeim turtildúfum

Ja svo komum við Emil aftur til Danmerkur 20.maí og Gunni, Sigrún og Ari sóttu okkur til Kaupmannahafnar enda er ekki auðvelt að vera ein á ferð með svona lítinn óþekktarorm, var bara enganveginn að meika 3ja tíma lestaferð.:S Þegar við komum heim á Kollegievænget 21 beið okkar nýjasti fjölskyldumeðlimurinn Pási (sem er páfagaugur bytheway) þannig að nú erum við orðin 7 í fjölskyldunni með fiskunum NEMO, Nemo og NeMo.8)

Alveg síðan ég kom heim frá Íslandi er eg búin að vera í skólanum langt fram á kvöld og bráðum þarf Gunni líka að vera svona mikið þegar nær dregur prófum, því ákváðum við að senda Emil með Sigrúni frænku sinni til íslands föstudaginn 25.maí og er hann búin að vera í góðu uppihaldi hjá Ellu ömmu sinni. Þetta var rosalega erfið ákvördun að senda barnið í svona langan tíma:( en ég veit bara að hann hefði ekki haft gott af því að vera hérna hjá okkur í öllu þessu skólastressi og myndi örugglega varla sjá mömmu sína. Heyrum reglulega í honum og hann er voðalega kátur og glaður og hefur það rosa gott, en við söknum hans óendalega mikið og er þetta mjög erfitt. Hafði áður bara verið frá honum í viku.:$

Gunni fer svo til Ísland 29.júni og ég kem viku á eftir eða 5.júlí. Við erum búin að vera nota tíman vel svona barnlaus og erum bara ALLTAF að læra. Urðum reyndar fyrir smá áfalli á föstudaginn en við erum bara að vinna okkur upp úr því og líður okkur alveg ágætlega. Nú er bara SKÓLI og aftur SKÓLI og nó mercy.:S

Jæja held að það komi ekki meira blogg hjá mér fyrr en eftir lokaprófið, allur tími er dýrmætur.

VI SES

Gunna


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 15:43:01 / emil

Nú er frost á fróni........

já ég er komin á Klakann... oh það er svo gott að vera komin heim á Hótel Mömmu.:haha: Við Emil komum á Laugardaginn. Um kvöldið horfðum við á evróvision heima hjá Grétari og Hildi.... var nú ekki mikið spent yfir þessari keppni. Á sunnudeginum fórum við Emil með mömmu á leikritið Karíus og Baktus og Elsku skinnið mitt er með svo lítið hjarta að við urðum bara að fara fram:$, honum leyst ekkert á þessa ljótu karla. Eftir leikritið fórum við aðeins í heimsókn til Fannars og Ingunnar og Emil var rosa hrifinn af nýju kisunni. Svo var ferðinni heitið á Selfoss til tengdó því Emil verður þar fram á Fimmtudagsmorgun. Hryngdi áðan og þá voru þau komin á Akranes til ömmu og afa hans Gunna og minn hafði nú ekki tíma að tala við mig......

Vá hvað ég sakna Gunna mikið..... alltaf svo erfitt að vera aðskilinn.:( Hann var nú eitthvað að kvarta yfir löngum verkefnalista sem ég skildi eftir honum:!:... en hvað ætti maðurinn svosem annað að vera að gera!!! ég veit að hann þorir ekki annað en að vera búin að gera þetta allt saman áður en ég kem heim.;)

Brúðkaupið hjá Grétari og Hildi er svo á Laugardaginn og eru þau á fullu í undirbúningnum og er ég búin að vera að passa Daníel í dag.... það er bara gaman.... maður hefur svo lítið fengið að kynnast hanum....hann er svo mikill Gullmoli.

Er lika búin að vera að reyna að læra eitthvað....svo ég fái nú ekki miklar skammir þegar ég kem aftur, nei, nei ég á alveg inni að vera í fríi þessa viku, það fer bara allt á full speed þegar ég kem aftur. Við erum bara orðin tvö í hópnum þar sem við rákum einn. Sá var búin að vera að ljúgja að okkur að hann væri veikur lon og don og svo sást til hans vera að vinna.:^) Við vorum náttúru EKKI sátt og sendum honum mail um að hann ætti að mæta með allt sem hann á að vera búin með samkvæmt skipulaginu okkar (maðurinn náttúrulega ekki búin að gera Jack) hann mætti náttúrlega ekki og þarmeð hættur í hópnum. Það er líka bara fínt nú getum við tvo bara einbeitt okkur að því að klára þetta án þess að vera að svekkja okkur á honum.

Læt þetta gott í bili

p.s gunni ég fékk mér Kentuky í gær og er að hugsa um að fá mér Dominos í kvöld, þá er bara American Style eftir, já og osta brauðstangir á Pizza Hut. Verð hringlótt þegar ég kem heim.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 19:43:04 / emil

Ný færsla......

Hæhæ hér er margt og mikið búið að gerast hjá okkur síðan síðast.

Gunni bað mín föstudaginn 20.apríl.....við vorum svona búin að vera að skoða hringa í sameiningu síðan um áramótin en allir hringarnir sem okkur fannst flottir voru svo hrikalega dýrir :( þannig að við ákváðum bara að geyma þetta eitthvað...NEI nei svo er minn maður bara búin að vera að borga smátt á smátt inn á hriga og ég hafði ekki KLUE:|....... alltaf tuðandi yfir peningleysi og skildi ekki í hvað peningarnir væru að fara, hélt í eitt skipti að Gunni hlyti að hafa verið rændur á djamminu eða misst peninga úr vasanum,:$ þá var hann bara að stinga peningum undan. Svo grillaði Gunni voða rómó mat og kom Emil í rúmið og kom svo til mín og sagðist þurfa að spyrja mig að svolítlu mikilvægu og ég skildi ekki neitt afhverju hann skalf allur svona? Mér brá svo að ég bara man hreinlega ekki orðrétt hvað hann sagði......en ég játaðist honum auðvita.:haha: Hringarnir eru rosa flottir og er minn með einum demanti og er grafið í þá á Dönsku: Din Gunnar ;) mér finnst það passa mjög flott þar sem við erum í danmörku. Það verður samt ekki brúðkaup eftir 1 ár eins og hefðin er..... ætli það verði ekki bara þegar við flytjum aftur heim.

En yfir í annað..... það var alveg ÆÐI að hafa mömmu hérna hjá okkur yfir páskana... ég er svo mikil mömmustelpa og sakna hennar alltaf jafn mikið.....mamma er semsagt búin að heimsækja mig 4 sinnum síðan ég flutti hingað út og ég er ekki búin að búa hér í 1 ár og ég fór líka heim um jólin. Pabbi kom með 2 sinnum og er ég auðvita farin að sakna hans líka ansi mikið. En ég er nú að koma til íslands eftir 2 vikur til að vera í brúðkaupinu hjá Grétari bróður.:lol: En þetta er alltsaman ótrúlega fljótt að líða....er að verða búin að búa hér í 1 ár, bara 3 ár eftir þ.e.a.s þar til Gunni klárar.

Það er búið að vera alveg geggjað veður hérna hjá okkur bara 25 stiga hiti 8) upp á hvern einasta dag, reyndar svolítill ókostur við það er að það er blakvöllur beint fyrir utan stofugluggan hjá okkur og upp úr hádegi hrúgast hópur af fólki hérna frá kollegiinu og eru í blaki langt fram á kvöld....ótrúleg orka í þessu liði.....að nenna þessu alla daga og í marga klukktíma. Það voru nú einhverjir í fyrra sem gáfust upp á þessu og skáru netið niður..... held að það verði nú ekki langt í að það gerist aftur!!!

Við Gunni erum búin að ákveða að taka okkur smá pásu á þessu skemmtanalífi og einbeyta okkur af skólanum.... vorum t.d upp í skóla frá 1-5 í dag og var Sigrún svo elskuleg að dúllast með Emil á meðan..... skondið að sjá það að þegar maður labbaði framhjá skólastofunum voru eignilega BARA íslendingar að vinna á SUNNUDEGI..... við erum svo samviskusöm.....enda þurfum við að borga námslán til baka ef við náum ekki.

Veit ekki hvort ég sé að gleyma einhverju......jú alveg rétt Inga frænka er Ólétt verður gaman að sjá hana með BUMBU, held að hún sé með lítinn prins og er áætlaður í heiminn í lok Október.... kannski fær Emil hann í afmælisgjöf.....var að sýna henni myndband af fæðingunni hans Emils á föstudaginn.... gaman að ryfja þetta upp...vona að hún hafi ekki orðið mikið skelkuð...NEI nei þetta er nú ekki svo slæmt miðað við það sem maður fær í staðinn. Innilega til hamingju með Bumbubúann Inga og Hjalli.:P

Jæja ætla að fara að kúrast fyrir framan Imbann með unnustanum mínum ;)

kveðja

Gunna Jóna


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 19:14:02 / emil

Í sól og sumaryl.......

það er komin svaka sumarfílingur í okkur hérna í Horsens .... það er búið að vera alveg gjeggað veður undarfarna daga8)...manni langar allavega minnst til að hanga inni í skólastofu og læra. Við fórum í gær með Emil út í garð að leika með flugdreka og svo í dag fórum við familian í hjólreiðatúr. Hjóluðum við niður á lestastöð að taka á móti Freyju frænku sem ætlar að vera hjá Sigrúnu í viku og ætlum við að gera eitthvað skemmtilegt um helgina því við verðum öll komin í páskafrí.:)

Mamma er svo að koma til mín á fimmtudaginn næsta....ooohh mér hlakkar svo til. Við ætlum að keyra til Köben og sækja hana, leggja bara snemma af stað og eyða deginum í Kaupmannahöfn..þar sem ég hef aldrei komið þangað nema á flugvöllinn. Við ætlum svo kannski að fara til Álaborgar og kíkja á Boggu frænku og í Dýragarðinn sem er þar og skoða bæinn sem er víst mjög fallegur. Kannski maður rekist á Helga á vappi þar ;)

Það er alltaf brjálað að gera í skólanum... er með tveimur dönum í hóp og eru þeir víst búnir að vera ,,Veikir'' síðan á Mánudaginn sem er ekki gott:evil: því við vorum að byrja á nýju verkefni og þyrftum við að ákveða hitt og þetta í sameiningu til að geta byrjað á þessu og þar sem þeir sjá sér ekki fært um að mæta ákvað ég ,,Ísdrottningin'':haha: bara að ákveða þetta sjálf og þeir verða bara að gera það sem ég segji ,,kvatizt'' (þetta átti s.s að vera svipuhljóð). Mér finnst alveg ótrúlegt hvað danir er lélegir í að skrifa dönsku:!:, er alltaf að leiðrétta stafsetninguna hjá strákunum, hvernig fyndist manni það nú ef maður væri í skóla á íslandi og einhver útlendingur sem væri ekki búin að búa á íslandi í 1 ár væri farin að leiðrétta mann.:^)

Var í H&M um daginn (eins og svo oft áður) en var að byðja um Taxfree nótu og gjellan á kassanum átti að skrifa 47 krónur í bókstöfum og hún var lengi að rembast við að skrifa FJÖRTÍU og bað samstarfskonu sína að hjálpa sér og hún vissi það ekki heldur svo þær skrifuðu bara syv og fyrer.8|

Við fengum að vita það að við fengjum enskukennslu á þessari önn því við ættum að framleggja hluta af lokaverkefninu á Ensku og allir danirnir hváðu bara (danir eru ekkert rosa góðir í ensku)....mig hlakkar nú bara til að heyra þá rembast við að tala á öðru tungumáli (Welcome to my world), þá kannski skilja þeir mann aðeins betur, maður talar náttúrulega eins og smákrakki og líður eins og hálvita, sérstaklega ef einhver skilur ekki hvað maður er að segja. (Ég   tala   ekki   góðann   íslenska   en   ég   skilja   allt   þú    segja ) ætli maður hljómi svona.:S Maður er eins og Pólverji á Íslandi (íslendingur í danmörku) ... verið nú góð og þolinmóð við útlendingana, alla vega þá sem eru að rembast við að læra tungumálið....hinir geta bara farið heim til sín.

Jæja ætlaði mér nú að vera dugleg að læra i kvöld en ákvað frekar að blogga og vona ég að þið verðið dugleg að kvitta svo ég nenni þessu aftur....já ég var líka að setja nokkra myndir inn.

Bæ i bili

Ísdrottningin

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 11:08:13 / emil

Letilíf á Kollegievænget 21

já,Það er erfitt að rífa sig upp úr þessu letilífi. 

Dröslaði mér 1 sinni í ræktina í þessari viku en stefni nú á allavega 100% betri árángur í næstu viku. Maður er nú víst búin að skrá sig í Keppir í keppni en sá vinnur sem nær flestum cm af sér ekki kílóum....þannig að vinningurinn er samasem minn því Inga og Eydís eru með mér í þessu og þær svo grannar að það er örugglega ekki mögulegt að missa fleiri cm, en tíminn mun leiða þetta í ljós.....þær eru örugglega duglegri að mæta í ræktina en ég.

Þessi helgi hjá okkur verður nú eitthvað skrítin þar sem við förum ekkert á fyllerí útaf þessu bindindi sem við erum í.......veit ekki hversu lengi það mun endast. :!:

Mamma og pabbi hans Gunna eru svo að koma til okkar 8.mars, en mamma hans er mjög dugleg að koma til okkar en pabbi hans er að koma í 1.sinn og ætlum við að reyna að gera eitthvað skemmtilegt. Þau ætla að vera í 10 daga.

Gunni er búin að bjóða Magga og Sigubjörgu á móti í kaffiboð í dag og ætlar kallinn að baka vöflur og læti....myndarlegur maður sem ég á. Þetta er líka síðasta sukk helgin okkar eins og allar hinar helgarnar á undan...sjáum hvernig næsta helgi verður...Herbalife og gulrætur.

Svo erum við að fara með Emil Aron á Öskudagsball eða Festelavns skemmtun hjá íslendingarfélaginu á morgun og ætlar hann að vera GLADIATOR algjör töffari.

 Bæ í bili

Gunna


» 10 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 11:54:07 / emil

Brálað stuð........

Komiði blessuð og sæl öll sömul......

Þá er 2.önn byrjuð og leggst bara vel í mig þó svo að verkefnið sem við erum í núna er ekkert svakalega skemmtilegt en maður getur ekki alltaf verið að gera það sem er skemmtilegt.:|

Sigrún og Ari eru komin með íbúð og er hún mjög svipuð okkar íbúð og ca.1,5km frá. Það er mjög gaman að hafa þau hérna í Horsens.:lol:

Gunni og Ari eru byrjaðir á 1.önn á dönsku línunni og eru bara að standa sig mjög vel. Við Gunni eru samfó í skólan og svona, skiptumst á að fara með Emil til dagmömmu.

Við Gunni þuftum að frjárfesta í 2stk fartölvum og valdi Gunni gripina...en ég vona nú bara að þessi tryllitæki dugi út námið því ekki er þetta gefnis skal ég segja ykkur.:$Ég er heima núna með Emil því hann er AFTUR veikur, er búin að vera meira og minna veikur síðan við komum frá Íslandi....Gubbupest...eyrnabólga...hálsbólga og kvef og nú hor og slen.:cry: Ég hryngdi á lækni og vildi fá tíma en afþví að hann er ekki með hita og það eru bara 2 læknar á vakt vildi hann helst ekki að ég kæmi með hann.....Ekki gott að þurfa að missa svona úr skólanum en ég er bara að vinna heima á gullgripnum mínum.

Við skelltum okkur á þorrablót íslendingafélagsins og keypti ég mér kjól og var Gunni að sjá mig í fyrsta sinn í kjól. Við Sigrún fengum okkur neglur og fórum í hárgreiðslu hjá Ástu og vorum þvílíkar skutlur. :haha:

Rosalega var gott að borða þorramat og átum við Gunni gjörsamlega á okkur gat og þurftum næstum því að fara heim en sem betur fer náðum við að hressa okkur við því það var alveg brjálað stuð á ballinu.

Á leiðinni heim ætluðu flestir niður í bæ en rútubílstjórinn var nú ekki á því að stoppa þar og fór bara heim á kollegi og því ákváðu við Gunni að halda party heima hjá okkur og kom Breiðbandið sem var að skemmta á blótinu með og spiluðu þeir ásamt Tidda gítarsnilling. VÁ hvað það var ógeðslega gaman....það fóru nokkrar Gajol flöskur og margir...margir bjórar enda skemmtun fram á morgun.

Við Gunni (The Guns) fengum síðan áritaðan disk frá hljómsveitinni. Ég er rétt núna að jafna mig á þynnkunni og farin að geta borðað að ráði.

Nú ætlum við að taka okkur LANGA pásu frá þessu fylliríisrugli og einbeita okkur að náminu......;)

Until next

Gunsa


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 18:19:16 / emil

1 önnin búin........6 to go

Já ég er búin með fyrstu önnina.:haha:

Ég og hópurinn minn vorum í prófinu í gærmorgun og fengum við ekkert smá gott feedback, en kennararnir sem dæmdu verkefnið sögðu að kynningin hefði verið alveg rosalega flott hjá okkur og báðu okkur um að fá að eiga verkefnið okkar til að geta sýnt þeim nemendum sem byrja á næstu önn  hvernig verkefnið eigi að vera og svo ætla þeir jafnvel að hengja það upp á vegg til sýnis í kjallara skólans en þar eru til sýnis verkefni fyrir hverja önn. Þannig að Gunni minn og Ari, fá að styðjast við verkefnið mitt *mont* *mont*

Ég var meira að segja með gubbupest allan þriðjudaginn og svaf ekkert um nóttina vegna beinverkja og hita en mætti samt í skólann um morguninn til að æfa kynninguna, fékk svo að fara aðeins heim að leggja mig meðan strákarnir hengdu verkefnið upp á prófstaðnum og svo æfðu við aðeins meira seinnipartinn.

Svo fékk ég hrós frá kennurunum fyrir dönskuna en var búin að spá í að fara á enskulínuna á næstu önn en við þetta egobúst held ég bara áfram á dönskunni og vona bara að það gangi eins vel en það er víst erfiðasta önnin.

Sigrún og Ari eru flutt hingað til okkar þar til þau finna sér íbúð og Emil kom bara aftur í okkar herbergi. Ari og Gunni eru svo að byrja í byggingarfræðinni núna í febrúar. Við erum því bara öll í fríi og að leika okkur til 13.feb.8)

Tengdamamma og Marta frænka hennar eru líka búnar að vera hérna síðustu viku og búnar að bæta heimsmetið í ,,shopping'' frá því í nóvember þegar þær voru hjá mér þá, en nú eru náttúrulega ÚTSALG í öllum búðum og erum við Gunni svona aðeins búina að smitast af þessari eyðslu og kaupa okkur nokkrar flíkur, en Gunni minn var náttúrulega búin að grennast svo mikið og átti bara e-h fitubolluföt, en nú en minn maður eins og klipptur úr tískublaði.;)

jæja held ég láti þetta gott í bili og ég lofa engum færslum því ég svík alltaf þau loforð....þannig þar til næst.....

Gunna


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 16:49:44 / emil

Nyheder af Beboerne på Kollegievænget en og tyve

Hæ allir saman......se að það eru svo margir að heimsækja siðuna alltaf að maður verður nu að fara að gera sitt og skjella inn nokkrum linum. Gunni er loksins komin til okkar og er það BARA æði....það er svo gott að fa hann aftur heim...við erum bara eins og við seum nybyrjuð saman...voða happy og in LOVE :lol:

Það var æði að få alla familiuna i heimsokn i frivikunni og fa loksins að knusa Daniel Bæring....oohhh hann er svo mikið rassgat. Emil åtti fråbærann afmælisdag og var herna fullt hus af folki, þakka alveg kærlega fyrir strakinn.:D Ella tengdamamma og Marta frænka hennar komu siðan sama dag og min fjölskilda for og var mjög gaman að hafa þær hja okkur.

Er allveg a fullu i skolanum, er mjög mikill lettir að Gunni se komin að sjå um heimilið og svelleis og er hann alveg þvilikt að standa sig með það.........algjor husmoðir.;) Siðustu vikur an hans eru bunar að vera mjög erfiðar.:S Emil passar lika voða mikið upp å pabba sinn og må eg ordid ekkert hjålpa honum, vill bara alltaf pabba sinn.8) Eg for i nyjann bekk i dag en bekknum minum var skift upp a tvo bekki og lennti eg bara i mjög goðum bekk og með mjög goðum hopfelögum fyrir næsta verkefni og byrjum við bara a fullum krafti a morgun og verður botlaus vinna alveg þar til eg fer til Islands eftir 24 daga.

Vid vorum med lett teiti herna hjå okkur å Laugardagskvöldið, en það åtti ad vera bekkjarparty hjå mer sem beiladi å sidustu stundu og eg var buin ad redda håkarli og brennivini til ad bjoda dönunum upp å en það endaði bara i Islensku gestina okkar. Við Gunni vorum svona eginlega ekki i miklu stuði þetta kvöld þvi við vorum bara nybuin að fa frettirnar af Benna og vorum alveg miður okkar.:( Okkur finnst rosa erfitt af vera svona langt i burtu og viljum auðvita vera hja honum og veita okkar stuðning en svona er lifið bara við verðum bara öll að vera sterk. Eg var nu eginlega hålf fegin að Gunni væri herna i Danmörku þegar við fengum frettirnar af þessu þvi annars hefði hann örgglega leitað åråsarmannin uppi og låtið hann finna fyrir þvi, þo að það se nu engin lausn.....maður verður nåtturulega bara svo reiður :klikk:, en vonandi fær hann bara að gjalda fyrir það sem hann gerði, þvi Benni mun þurfa að gjalda þess alla ævi.:frown:

Fyrir þå sem eru ekki með þå var það Benni broðir hann Gunna sem var barin lifshættulega å Selfossi um helgina...en þið getið lesið meir um það å siðunni hans Gunna.

Okkur hlakkar alveg svakalega að koma til Islands og getum varla beðið....hef aldrei verið svona lengi i burtu af landinu goða.....:haha: bara 24 dagar......

Verið dugleg að kommenta og endilega svara könnuninni minni ;)

Hilsen Gunna


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2